STARFSREGLUR
1. gr.
Ráðið heitir Foreldraráð Engjaborgar.
2. gr.
Heimili ráðsins er leikskólinn Engjaborg, Reyrengi 11, 112 Reykjavík.
3. gr.
Tilgangur foreldraráðsins er að framfylgja lögum um leikskóla (2008/90 IV. kafli, 11.gr.).
4.gr.
Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4. gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.
5.gr.
Foreldraráð skal kosið á aðalfundi Foreldrafélags Engjaborgar ár hvert. Í ráðinu skulu að lágmarki sitja 3 foreldrar og geta þeir verið þeir sömu og sitja í stjórn foreldrafélagsins. Kosningarétt hafa allir foreldrar og forráðamenn barna á leikskólanum Engjaborg. Foreldraráðið skal funda að lágmarki tvisvar hvert starfsár, fyrra skiptið til að fara yfir skólanámskrá og aðrar áætlanir og í seinna skiptið til að meta hvernig þeim er framfylgt.
6. gr.
Tillögur til breytinga á starfsreglum verða að hafa borist stjórn skriflega fyrir auglýstan aðalfund foreldrafélagsins. Breytingar á starfsreglum ná því aðeins fram að ganga að 2/3 fundarmanna greiði þeim atkvæði.
Í foreldraráði veturinn 2018-2019 eru:
Eva Rós mamma Vöku Rutar á Austurengi.
Valdís María mamma Viktors Inga á Norðurengi.
Anna mamma Hrafnkötlu á Norðurengi.